Sjöundi landsfundur Kvennalista var haldinn að Básum í Ölfusi dagana 27.-29. október 1989. Fundinn sátu um 90 konur frá öllum kjördæmum landsins. Á dagskrá var hugmyndafræði kvenfrelsiskvenna, reynsla af sveitarstjórnarmálum og stefna í komandi sveitarstjórnarkosningum.

Í ályktun frá landsfundinum var lögð áhersla á að: „Konur verði fjárhagslega sjálfstæðar, félagslegt sjálfstæði kvenna verði að veruleika, móðurhlutverkið og líkamlegt sjálfstæði kvenna verði virt og að menningarlegt sjálfstæði kvenna viðurkennt.“

Mikil umræða var um sveitarstjórnarmál í ljósi þess að kosningar áttu að fara fram að vori. Í umræðu um málefni EFTA og EB var niðurstaðan sú „að aðild að EB kæmi ekki til greina.“

Sjá nánar ályktanir frá landsfundi að Básum og fleiri skjöl hér að neðan.

 

Myndir frá landsfundi að Básum í Ölfusi 1989

 

Skjöl frá landsfundi að Básum 1989 (PDF)

 

Ræður á landsfundi að Básum 1989 (PDF)

 

Fréttir úr fjölmiðlum frá landsfundi að Básum (PDF)