Fyrsta tölublað Veru, tímariti Kvennaframboðsins í Reykjavík, leit dagsins ljós í október 1982. Í leiðara segir meðal annars að hlutverk þess sé „að koma á framfæri sjónarmiðum kvenna“ og blaðið „væri liður í baráttu íslenskra kvenna fyrir bættum kjörum og auknum áhrifum.“ Vinnan við tímaritið var framan af sjálfboðavinna enda ekkert fjármagn fyrir hendi. Ritstjórn skipuðu 8-10 konur.  Þær skrifuðu blaðið, settu það upp, tóku ljósmyndir, sáu um prófarkalestur, fóru með blaðið í prentun og jafnvel pökkuðu í plast. Fyrstu 10 árin var enginn sérstakur ritstjóri. Óhætt er að segja að Magdalena Schram hafi átti stærstan þátt í að Vera varð að veruleika og stóran þátt í velgengni tímaritsins fyrstu árin.

Árið 1984 gerðu Kvennalisti og Kvennaframboð í Reykjavík með sér helmingafélag um útgáfu Veru og breyttist þá titillinn úr Verablað Kvennaframboðsins í Reykjavík í Veramálgagn kvenfrelsisbaráttu. Stefnan varð sú að ritið væri málgagn kvenfrelsisbaráttu eins og hún birtist í hugmyndafræðigrundvelli og stefnuskrám Kvennalista og Kvennaframboðs. Gert var ráð fyrir sérstökum þingmálasíðum auk borgarmálasíðna. Með því að ganga til samstarfs við Kvennalista vænkaðist fjárhagurinn því Kvennalistinn fékk árlegan útgáfustyrk frá Alþingi.

Árið 1989 breyttist titillinn í Vera, tímarit um konur og kvenfrelsi. Útgefendur voru áfram Kvennaframboð og Kvennalisti fram til ársins 1991, er Kvennalisti verður eini útgefandinn. Aldamótaárið var stofnað einkahlutafélagið Verurnar, um rekstur Veru, sem nokkrar áhugasamar konur stóðu að. Verurnar ehf gáfu ritið út þar til Vera lagðist af árið 2005. Alls urðu árgangarnir 24 og árlega komu út um 6 tölublöð.

Síðasta breyting á texta 23. júlí 2019

 

Forsíður af Veru

 

Skjöl (PDF)

Mynd 1
   Björg Árnadóttir, Inga Dóra Björnsdóttir, Kristín Karlsdóttir og Sigríður Lillý Baldursdóttir   
Mynd 2
   Stella Hauksdóttir trúbador og Helgi Ólafsson stórmeistari   
Mynd 3
    óþekkt, Helga Sigrún, Elísabet og Sigrún   
Mynd 4
   Friðbjörg, Ragnhildur Vigfúsdóttir og Björg Árnadóttir   
previous arrowprevious arrow
next arrownext arrow
Mynd 1
   Anna Fjóla Gísladóttir, Kolbrún Oddsdóttir og Ása Richardsdóttir sitjandi. Standandi eru Sigrún Björnsdóttir og Sigurborg Stefánsdóttir   
Mynd 2
   Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Þórunn Sveinbjarnardóttir, Nína Helgadóttir og Vala Valdimarsdóttir   
Mynd3
    Laura Valentino, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, Björg Árnadóttir, Hrund Ólfsdóttir og Lára Magnúsardóttir   
Mynd 4
   Lára Magnúsardóttir, Ragnhildur Helgadóttir og Guðrún Ólafsdóttir   
Mynd 5
   Ragnheiður Vigfúsdóttir, Björg Árnadóttir, Vala Valdimarsdóttir.   
Mynd 6
   Ragnhildur Helgadóttir, Björg Árnadóttir og Sigurborg Stefánsdóttir   
Mynd 7
   Vala Valdimarsdóttir, Anna Fjóla Gísladóttir, Ása Richardsdóttir og Hildur Jónsdóttir   
Mynd 8
   Ragnhildur Helgadóttir og Guðrún Ólafsdóttir.   
Mynd 9
   Ragnhildur Vigfúsdóttir og Laura Valentíno   
Mynd 10
   Sigurborg Stefánsdóttir, Kolbrún Oddsdóttir, Ása Richardsdóttir, Ragnhildur Helgadóttir og Kristín Karlsdóttir   
Mynd 12
   Sigurborg Stefánsdóttir, Kristín Ragna Gunnarsdóttir og Laura Valentino   
Mynd 11
   Það er fjör hjá okkur. Þórunn Sveinbjarnardóttir og Vala   
previous arrowprevious arrow
next arrownext arrow
Mynd 1
   1990 Ingibjörg Sólrún kvödd. Kicki, Ingibjörg, Elísabet, Stella á gítarnum, Sigrún, Margrét    
Mynd 2
   1990 Ritnefnd Veru, Ingibjörg Sólrún, Ragnhildur, Björg og Elísabet   
Mynd 4
    Vala Valdimarsdóttir og Sigurborg Stefánsdóttir   
Mynd 4
  Kjallarinn á Laugavegi fullur af hinni dýrmætu Veru   
Mynd 5
   Ragnhildur Vigfúsdóttir að bjarga verðmætum í kjallaranum á Laugavegi   
Mynd 5 - copy
Myndin var tekin 1985 í tilefni af umfjöllun í Veru um móðurhlutverkið. Þar sem fram kom að sumar nýbakaðar mæður fyndu ekki fyrir þeirri yfirþyrmandi móðurást sem þær ættu að finna. Þetta var tabú og vakti sterk viðbrögð. Sagt var að konur sem skrifuðu í þessa veru ættu greinilega ekki börn sjálfar.
previous arrowprevious arrow
next arrownext arrow