Níundi landsfundur Kvennalista var haldinn á Seltjarnarnesi 15.-17. nóvember 1991. Um 60 konur alls staðar af landinu sátu fundinn.

Yfirskrift fundarins var „Spinnum þráð í velferðarvefinn.“ Eins og yfirskriftin ber með sér snérist umræðan á fundinum mikið um velferðarkerfið.

Ályktað var um atvinnu- og byggðamál, mennta- og menningarmál, ótímabæran niðurskurð í heilbrigðiskerfinu, málefni fatlaðra og umferðaröryggismál. Einnig var ályktað um samninga EFTA og EB um Evrópskt efnahagssvæði. Á fundinn mætti hópur ungra kvenna sem síðar átti eftir að gera sig gildandi í hreyfingunni og hafa áhrif á stefnumótunina.

Sjá nánar ræður og ályktanir frá landsfundinum hér að neðan.

 

Skjöl frá landsfundi 1991 (PDF)

 

Ræður á landsfundi á Seltjarnarnesi 1991 (PDF)

 

Ályktanir frá landsfundi á Seltjarnarnesi 1991

 

Fréttir úr fjölmiðlum frá landsfundi á Seltjarnarnesi 1991 (PDF)