Kvennaframboð gaf út stefnuskrá í borgarmálum 1982 og Kvennalisti 1986 og 1990

Langlífi Kvennalista má m.a. skýra með því að grunnurinn var vel útfærður og traustur. Hugmyndafræðin var skýr og stefna í einstökum málum byggði á henni. Einnig var mikilvægt hve margar konur komu að stefnumótuninni.

Á annað hundrað konur unnu að því að skrifa fyrstu stefnuskrá Kvennaframboðs. Haldnir voru fjöldinn allur af fundum á Hallveigarstöðum, Hótel Vík og víðar.

Helstur kröfur 1982 voru að:

  • gefa öllum börnum kost á dagvistun í að minnsta kosti sex klukkustundir
  • hafa skóladag samfelldan, skóla einsetna og fækka nemendum í bekkjum
  • lengja skólatíma sex ára barna. Dvalartími barna verði ekki lengri en sex tímar á dag á stofnunum.
  • bjóða börnum upp á aðgang að skólaathvarfi og mat í skólum
  • færa valdið nær borgarbúum, auka íbúalýðræði og stofna hverfasamtök
  • auka samfélagslega ábyrgð, allir séu samábyrgir fyrir velferð einstaklinga
  • binda ekki fjármagn ákveðnum málaflokkum heldur forgangsraða málum
  • stytta og gefa foreldrum kost á sveigjanlegri vinnutíma
  • fjölga æskulýðsmiðstöðvum og og félagsmiðstöðvum
  • stofna athvarf fyrir unglinga í bráðum vanda,
  • auka áherslu á almenningsíþróttir fremur en keppnisíþróttir
  • flytja flugvöllinn úr miðborginni
  • bæta þjónustu almenningssamgangna og blanda og þétta byggð
  • auka fræðslu og áróður um mikilvægi góðs mataræðis
  • meta húsmóðurstarfið til launahækkunar
  • auðvelda konum að fara út á vinnumarkaðinn með því að veita þeim tækifæri til menntunar og starfsþjálfun sniðið að þeirra áhugamálum.
  • stofna neyðarathvarf fyrir konur.

Í stefnuskrá 1986 var sú nýjung að lögð var áhersla á mikilvægi þess að koma í veg fyrir andlegt og líkamlegt ofbeldi á börnum og kynferðismisnotkun á þeim. Einnig var krafa um kjarnorkuvopnalausa Reykjavík og að skip með kjarnorkuvopn innan borðs verði óheimil aðkoma að hafnarsvæði Reykjavíkur.

Í stefnuskránni 1990 er aukin áhersla á kvennamenningu og kvennapólitíska stefnu sem byggir á reynsluheimi kvenna. Auknar tekjur borgarinnar eigi að verja til að jafna kjör borgarbúa og bjóða upp á góða og ódýra þjónustu.

 

Ljósmyndir frá stefnumótunarfundum

 

Skjöl tengd stefnuskrárvinnu (PDF)