Á afmælishátíð Kvennaframboðs flutti Hjördís Hjartardóttir ræðu eftir Guðrúnu Jónsdóttur félagsráðgjafa, fyrrverandi borgarfulltrúa og eftirlaunakona. Hér má lesa ræðuna.
Hvers vegna Kvennaframboð 1982? Hver var árangurinn?
Þegar ég lít til baka þessi 90 ár, þá má skipta ævi minni í tvennt, – fyrstu 50 árin taldi ég að það væri undir einstaklingnum komið hvernig hann finndi sér leið í lífinu og taldi líf mitt sönnun þess, fátæka stúlkan sem braust til mennta en lagði sig fram um að sinna bæði vinnu innan og utan heimilis á fullkominn hátt. Á þessum árum þótti í frásögur færandi ef gift kona vann fulla vinnu utan heimilis. Fimmtug var ég lögð inn á Borgarspítalann með hálflamaða handleggi, þá loksins fór ég að hugsa um hvernig ég hefði varið ævi minni fram á þennan dag og fann út að tími væri kominn til að skipta um stíl.
Ég var lengi mjög hikandi. Velti fyrir mér Rauðsokkahreyfingunni, fylgdist vel með henni, en gekk aldrei til liðs við hana. Dóttir mín dreif mig með sér á fundina á Borginni áður en Kvennaframboðið var formlega stofnað og á seinni fundinum þá sá ég ljósið. Það sem hreyfði við mér var umræðan um hlut kvenna í launamálum og hlutskipti kvenna almennt.
Helstu baráttumál okkar í Kvennaframboðinu voru þjónusta við börn; leikskóla fyrir alla, skólamötuneyti, gæsla eftir skóla; að auka hlut kvenna við borðin þar sem ákvarðanir eru teknar; aukið íbúalýðræð; jafna launamun kynjanna og í stefnunni var talað um nauðsyn kvennaathvarfs. Við lögðum áherslu á nýjan hugsunarhátt og algjörlega breytta forgangsröðun.
Hvað hefur breyst?
Þjónusta við börn hefur aukist verulega þó enn vanti talsvert upp á.
Íbúalýðræðið í Reykjavík lýsir sér helst þannig að íbúar hverfanna fá að kjósa um hvort er sett upp borð eða bekkur.
Það hefur svo sannarlega fjölgað konum á Alþingi og í sveitarstjórnum, en hefur það breytt einhverju. Það er erfitt að hafa sterkar skoðanir sem ekki fá hljómgrunn hjá meirihlutanum, það þarf takmarkalaust þrek og baráttuvilja til að gefast ekki upp. Lengi vel hefur maður ekki séð svo mikið sem smá neista róttækrar kvennabaráttu á Alþingi að maður nefni nú ekki borgarstjórn. Hvað veldur.
Í Kvennaframboðinu bjargaði það minni sálarheill og efldi baráttuþrekið og sjálfsagt átti það við um fleiri konur, að vera með í allskonar uppákomum; breytast í fegurðardrottningu , neita að borga fullt verð fyrir vörur í búðum krefjast afsláttar í samræmi við launamun kynjanna, klæða styttur borgarinnar af körlum í kjóla.- einu sinni kostaði þetta handtöku, en nóg um það.
Ég get ekki stillt mig um að lesa tvær stuttar bókanir okkar Möllu á fegurðardrottningafundinum.
Vegna 24. liðar fundarg. Borgarráðs 4. júní.
Þetta er eitt af þessum hryllilega ruglingslegu málum, sem ómögulegt er að botna í. Davíð segir að það séu nóg bílastæði fyrir alla við Grettisgötu en Sigurjón og strákarnir í minnihlutanum segja að það sé bara ekki satt hjá Davíð. Er það nokkur furða þó við ruglumst í ríminu.
Og
Vegna 60. liðar fundargerðar byggingarnefndar 30. maí.
Svona mál finnst okkur alveg hræðileg. Hugsa sér að borgarstjórinn og félagsmálaráðherra skuli vera farnir að rífast um einhver týnd mæliblöð. Maður verður nú bara óöruggur. Og aumingja verktakinn að lenda svo í rifrildi við íbúana. Þetta hefst upp úr því að vera alltaf að kynna allt fyrir fólki. Það endar nú bara með því að ekkert verður hægt að byggja í borginni. Er ekki bara best að þið ráðið þessu. Við erum alveg hlutlausar.
En aftur að alvörunni.
Launamunur kynjanna – þreytt umræðuefni. En þarna getur verið um að ræða allskonar – sko- launamun – óleiðréttan launamun og leiðréttan launamun. Munur á atvinnutekjum karla og kvenna 2020 var 25.5 % ,- óleiðréttur launamunur – það er þegar tekið er mið af vinnustundafjölda að baki laununum var munurinn kominn niður í 13.9%. En eins og þið vitið nenna konur ekki að vinna meira, velja að dútla við að sækja krakkana, kaupa í matinn og jafnvel líta við hjá foreldrum eða afa og ömmu sem nú kallast almennt fráflæðisvandi.
En leiðréttur launamunur hefur verið fundinn upp – þar sem þess er gætt að bera saman kynin eftir sambærilegum eiginleikum og sambærilegum störfum, með eiginleikum er átt við m.a.menntun, starf og atvinnugrein. Með þessari aðferð er munurinn lækkaður niður í 4.3% og er skv. þessari skýrslu Hagstofunnar helst skýrður með vel þekktri áráttu kvenna að sækja í láglaunastörf og ekki nóg með það, ef þær leggja í háskólanám velja þær brautir sem skila lægri launum, svona einhverskonar dútl í kringum fólk.
Maður spyr sig hvort við sköpun hávísindalegra reiknilíkana Hagstofunnar hafi engum dottið í hug sú einfalda skýring að hefðbundin kvennastörf séu alltaf vanmetin til launa.
Meira að segja Mogginn sagði í tilefni útkomu þessarar skýrslu „ kynbundinn launamunur fer hægt minnkandi.
Eini sjáanlegi neisti kvennabaráttu þessa dagana er barátta kvenna gegn kynferðisofbeldi. Konur sem hafa gefist upp á réttarvörslukerfinu, lögreglu og dómstólum, hafa tekið til sinna ráða, koma fram opinberlega og segja sína sögu. Það er fullkomlega eðlilegt að þegar kerfið virkar ekki verður að berjast annarstaðar og með öðrum hætti. Vegna þessarar umræðu hafa nokkrir karlar hrakist úr stöðum sínum ,- við eigum nú samt ennþá eftir að sjá hversu lengi það endist. Sú breyting hefur orðið að varla nokkur maður lætur í ljós þá skoðun að konur beri ábyrgð á að þær séu beittar ofbeldi, það er ekki lengur stuttum pilsum að kenna. Ég man bara eftir einum fyrrverandi hæstaréttardómara sem sagði um daginn að besta ráðið við byrlunum væri að konur drykkju minna.
Ekki er sjáanlegt að kynferðislegt ofbeldi eða annað ofbeldi gegn konum og börnum hafi minnkað,tölur benda í þveröfuga átt.
Fjölgun kvenna á Alþingi, í sveitarstjórnum og öðrum valdamiklum embættum hefur vissulega skilað tugum eða hundruðum kvenna hærri launum og setu við stjórnarborðin, – en hverju hefur þetta skilað til allra hinna kvennanna. Hvað eiga konur að bíða lengi.
Besta afmælisgjöf Kvennaframboðsins væri að konur legðu niður vinnu, fylktu liði streymdu út á göturnar og netmiðlana, krefðust sómasamlegs réttarkerfis, raunverulegs jafnréttis í launamálum og alls hins sem upp á vantar.
Eru við ekki búnar að fá nóg.
MAR
2022