Afmælishátíðin lukkaðist frábærlega. Þetta var dásemdar dagur, mikið hlegið og fjöldasöngurinn var kraftmikill við undirleik Valgeirs. Gamla góða Kvennaframboðsorkan og gleðin réð ríkjum. Gott ef ekki sveif byltingarandi yfir vötnum.

Dagskráin var fjölbreytt. Sagan var rifjuð upp og horft til framtíðar. Guðrún og Ingibjörg Sólrún veltu upp spurningunum: „Hvers vegna Kvennaframboð 1982?“ og „Hver var árangurinn?“ Ólöf Tara, Sonja Ýr, Isabel Alejandra og Sóley fjölluðu um helstu baráttumálin í dag og það sem brennur á konum. Halla og Breki, afleggjarar Kvennaframboðskvenna fræddu okkur um hvernig væri að alast upp hjá Kvennaframboðskonum. Þorgerður flutti erindið „Femínistarnir og samtíminn, erum við öll á sömu leið?“ Látinna Kvennaframboðskvenna var minnst og Gerður Kristný flutti frumsamið ljóð. Brugðið var á leik með gamanmálum Helgu Thorberg og söng Vigdísar og Ragnhildar.

Hátíðin var haldin í Veröld hinn 13. mars 2022. Sjálft afmælið var hinn 31. janúar en vegna covid varð að fresta því. Salurinn í Veröld var troðfullur og margir þurftu að standa eða sitja í tröppunum. Myndirnar sýna fjöldann og hversu skemmtileg stemmningin var á afmælishátíðinni.

Brynhildur Flovenz og Kristín Jónsdóttir
Ragnhildur Vigfúsdóttir, Kristín Blöndal og Ingibjörg
Margrét Sæmundsdóttir,, Sigríður Margrét Guðmundsdóttir og Björg Eysteinsdóttir
Gerður Kristný, Kristín, Sigurbjörg og Örvar.
Valgeir Guðjónsson, Örvar Kristínar Jónsson, Kristín Jónsdóttir og Sigurbjörg Aðalsteinsdóttir
Halla Harðardóttir, Sigurbjörg og Kristín
Ingibjörg Sólrún, Guðrún Jónsdóttir og Brynhildur Flovenz
Guðrún, Ingibjörg Sólrún, Sóley, Isabel og Breki
Hildur Kjartansdóttir með slæður sem Hildur hannaði og framleiddi og Margrét Sæmundsdóttir
Helga Thorberg og Kristín Jónsdóttir
Vigdís
Helga Thorberg
María Jóhanna Lárusdóttir, Helga Sigrún, Sigríður Ingibjörg og Ragnhildur Vigfúsdóttir
Valgeir og Vigdís
Sigurbjörg, Kristín og Örvar
Yfirfullur salur.j Fremst sitja Guðrún Jónsdóttir, Hjördís Hjartardóttir og Ingibjörg Sólrún Gísladótti
Sonja Ýr, Ísabel, Ólöf Tara, Sóley, Kristín, Sigurbjörg og Örvar
Horft yfir salinn
Brynhildur, Hildur Kjartans, Guðrún A, Hanna Maja og Valgeir
Sonja Ýr, Sóley, Ísabel og Ólöf Tara
Horft yfir salinn í Veröld
Þorgerður Einarsdóttir, Kristín Jóns, Sigurbjörg og Örvar
Dómar heimsins sungnir við undirleik Valgeirs Guðjónssonar
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Sigurbjörg, Örvar og Kristín
previous arrow
next arrow
 
 

Hvers vegna Kvennaframboð 1982? Hver var árangurinn?

Afleggjarar Kvennaframboðskvenna

„Femínismarnir og samtíminn, erum við öll á sömu leið?“

Víðátta

Hver væru baráttumálin í dag – hvað brennur nú á konum?

 
Slide1
Slide2
Slide3
Slide4
Slide5
Slide6
Slide7
Slide8
Slide9
Slide10
Slide11
Slide12
Slide13
Slide14
Slide15
Slide16
Slide17
Slide18
Slide19
Slide20
Slide21
Slide22
Slide23
Slide24
Slide25
Slide26
Slide29
Slide27
Slide30
Slide32
Slide28
Slide31
previous arrow
next arrow
.