Kvennafrídagurinn 1975

Konur um land allt lögðu niður vinnu á degi Sameinuðu þjóðanna 24. október

Kvennafrídagurinn 24. október 1975 er mikilvægur atburður í sögu íslenskrar kvennabaráttu. Hann hafði mikil áhrif á konur og var þeim hvatning til stórra afreka. Án hans hefði Kvennaframboð og Kvennalisti varla verið stofnaðir. Markmiðið með kvennafrídeginum var að sýna fram á mikilvægi vinnuframlags kvenna. Þennan dag skynjuðu konur styrk sinn sem og hina miklu kvennasamstöðu þvert á stjórnmálaskoðanir og stöðu og sjálfsvitund kvenna efldist. Talið er að um 90% íslenskra kvenna hafi lagt niður vinnu. Hugmyndin kom frá Rauðsokkahreyfingunni og rauðsokkur vildu kalla þetta kvennaverkfall. Stærsti viðburðurinn var útifundur á Lækjartorgi þar sem  um 25 þúsund manns mættu, nær allt konur, og hlýddu á hvatningarræður, söng og leikþætti um stöðu kvenna. Þetta var stærsti fundur sem haldinn hafði verið á Íslandi. Þessi vel heppnaða aðgerð staðfesti mikilvægi vinnuframlags kvenna því að atvinnulífið lamaðist að mestu þennan dag.

0