Stærsti sigur Kvennalista voru kosningaúrslitin í Alþingiskosningum 1987. Hann bauð fram í öllum kjördæmum og fylgið tvöfaldaðist. Kvennalistinn fékk 10% atkvæða á landsvísu og sex konur á þing.

Í Reykjavík fékk listinn 14% atkvæða og þrjár konur á þing, Guðrúnu Agnarsdóttur, Kristínu Einarsdóttur og Þórhildi Þorleifsdóttur, í Reykjanesi 9.1% og eina þingkonu, Kristínu Halldórsdóttur. Á Norðurlandi eystra fékk listinn 6,4% og eina þingkonu, Málmfríði Sigurðardóttur. Á Vesturlandi rúm 10% og eina þingkonu Danfríði Skarphéðinsdóttur.

Fyrir tíma Kvennalista, sem var stofnaður 1983, var hlutfall kvenna á Alþingi 5% en eftir kosningarnar 1987 var það orðið 21%. Þingkonur voru orðnar 13 en höfðu verið þrjár.

Margir litu svo á að Kvennalisti væri sigurvegari kosninganna þó að Borgaraflokkurinn hafi fengið fleiri atkvæði og sjö þingmenn kjörna. Í fyrsta skipti frá stríðslokum jók nýtt pólitískt afl kosningastyrk sinn þegar það bauð fram í annað sinn.

 
Framboðslistinn í Reykjavík og þingkonur 1987-1991
 
Ræður og greinar í kosningabaráttunni í Reykjavík 1987 (PDF)
 
Dreifirit og fréttabréf í kosningabaráttunni 1987 (PDF)
 
Skoðanakannanir 1988 og 1989
 
Stjórnarmyndunarviðræður eftir kosningar 1987 og haustið 1988