Þrettándi landsfundur Kvennalista var haldinn á Nesjavöllum hinn 10.-12. nóvember 1995.
Hátt í 60 konur úr öllum kjördæmum voru mættar á fundinn.Umræða um kvennapólitík fékk mikið rými. Einnig var umræða um hvort breyta ætti eðli Kvennalistans. Fimm kostir voru til umræðu:
- Óbreytt stefna og vinna að því að efla Kvennalistann.
- Kvennalistinn hætti að bjóða fram en starfi áfram sem stjórnmálahreyfing.
- Opna Kvennalistann fyrir körlum og gefa þeim kost á að sitja á listum.
- Taka upp samstarf við önnur stjórnmálaöfl eða sameinast öðrum flokkum.
- Leggja Kvennalistann niður og veita konum pólitískt frelsi.
Niðurstaðan var sú að efla Kvennalistann og snúa vörn í sókn.
Mikil umræða var um kjarabaráttu kvenna, útskipti á þingi og fleira.
Sjá nánar ályktanir, ræður og önnur gögn frá fundinum hér að neðan.