Ræða Guðrúnar Jónsdóttur

Á afmælishátíð Kvennaframboðs flutti Hjördís Hjartardóttir ræðu eftir Guðrúnu Jónsdóttur félagsráðgjafa, fyrrverandi borgarfulltrúa og eftirlaunakona. Hér má lesa ræðuna.

Hvers vegna Kvennaframboð 1982? Hver var árangurinn?

Þegar ég lít til baka þessi 90 ár, þá má skipta ævi minni í tvennt, – fyrstu 50 árin taldi ég að það væri undir einstaklingnum komið hvernig  hann finndi sér leið í lífinu og taldi líf mitt sönnun þess, fátæka stúlkan sem braust til mennta en lagði sig fram um að sinna bæði vinnu innan og ...

Lesa meira

Dagskrá afmælishátíðar

Afmælishátíð í tilefni af 40 ára afmæli Kvennaframboðs,

haldin í Veröld–húsi Vigdísar, hinn 13. mars kl. 14:00-17:00

14:00  Hvers vegna Kvennaframboð 1982? Hver var árangurinn?

Guðrún Jónsdóttir, félagsráðgjafi, fyrrverandi borgarfulltrúi og eftirlaunakona / Hjördís Hjartardóttir, félagsráðgjafi og eftirlaunakona.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fulltrúi Aðalritara Sameinuðu þjóðanna í Írak og fyrrverandi borgarstjóri og borgarfulltrúi.

14:25  Látinna Kvennaframboðskvenna minnst

Fjöldasöngur „Dómar heimsins dóttir góð“ við undirleik Valgeirs Guðjónssonar.

14:35  Afleggjarar Kvennaframboðskvenna

Halla Harðardóttir, dagskrárgerðarkona hjá RÚV og þáttastjórnandi. „Bara, er ekkert svar“
Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna. „Sko mömmu, barn Kvennaframboðskonu ...

Lesa meira

Afmælishátið. 40 ár frá stofnun Kvennaframboðs

Afmælishátíð í Veröld, húsi Vigdísar, 13. mars. Kl. 14.00-17.00

Í vor eru 40 ár síðan boðnir voru fram kvennaframboðslistar til Borgarstjórnar Reykjavíkur og Bæjarstjórnar Akureyrar. Þeir mörkuðu söguleg tímamót í pólitískri baráttu kvenna fyrir auknu jafnrétti. Dagvistarmál barna voru í algjörum ólestri, skóladagur sundurslitinn og enginn hádegisverður í skólum. Launamisrétti var ótrúlegt og störf kvenna í umönnunarstéttum voru gróflega vanmetin. Umhverfisvernd var fjarlægur draumur og fjörur borgarinnar skreyttar marglitum klósettpappír. Fjarvera kvenna í áhrifastöðum í þjóðfélaginu var áberandi enda algjör karlaslagsíða ...

Lesa meira

Hugsaðu með hjartanu

Guðrún Ögmundsdóttir hefði orðið 70 ára í dag 19. október. Minnumst Gunnu sem hvatti okkur til að fylgja hjartanu, þora að njóta lífsins, gefa hamingjunni tækifæri og henda sektarkenndinni á haugana. Allir sem kynntust henni urðu ríkari.

Lesa meira

Guðrún Ólafsdóttir

Mannkostakonan Guðrún Ólafsdóttir, kvennalistakona er fallin frá. Það var styrkur og gæfa Kvennaframboðsins, þegar því var ýtt úr vör í árslok 1981, hversu breiður og fjölbreyttur hópur kvenna lagði því lið. Þarna komu saman konur á öllum aldri úr ýmsum áttum. Flestar með litla reynslu af pólitísku starfi en allar með sömu brennandi þörfina til að láta um sig muna í baráttunni fyrir bættum hag kvenna. Guðrún var einn af stofnendunum og í nóvember 1981 var hún kosin í kynningarnefnd ...

Lesa meira

Gunnusjóður

Eftir fráfall Guðrúnar Ögmundsdóttur ákváðu Kvennalistakonur að stofna reikning til styrktar góðu málefni í minningu Gunnu eins og hún var jafnan kölluð. Margir lögðu hönd á plóg og létu fé af hendi rakna í sjóðinn.

Ákveðið var að styrkja Ljósið sem er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein og aðstandendur þess. Innan Ljóssins hefur verið stofnaður sérstakur reikningur fyrir Gunnusjóð, ætlaður þeim sem ekki eru aflögufærir til að nýta sér þá þjónustu sem Ljósið býður upp á þeim ...

Lesa meira

Guðrún Ögmundsdóttir

Guðrún Ögmundsdóttir hefur kvatt þennan heim og gengið á vit ljóssins. Hún var einstök manneskja,  ótrúlega læs á fólk og hafði einstætt innsæi á mannlegt eðli. Alltaf reiðubúin að styðja og styrkja og örlát á ráð og reynslu.  Guðrún var hrókur alls fagnaðar hvar sem hún kom og snillingur í að skapa góða stemmningu.

Kvennalistinn var svo lánsamur að fá að njóta krafta hennar. Gunna Ö. var öflugur liðsmaður og gegndi þar ýmsum trúnaðarstörfum  Hún var varaborgarfulltrúi í borgarstjórn fyrir Kvennalistann ...

Lesa meira

Af hversdagslífinu á Víkinni.

Það var óvenjurólegt þennan dag á Víkinni. Við Fanney sem vann fyrir Kvennaframboðið og ég sem vann fyrir Kvennalistann vorum einar í salnum þegar karlmaður birtist í gættinni. Það gerðist ekki á hverjum degi svo við löguðum aðeins á okkur hárið og réttum úr okkur í sætunum áður en við heilsuðum. Hann var hinn vandræðalegasti og virtist ekki alveg viss um hvar hann væri. Við buðum góðan dag og hann ræskti sig og spurði hvort þetta væri þetta Kvennahús. Við ...

Lesa meira

Úr kosningabaráttunni

Það var langt liðið á kosningabaráttuna árið 1987 og við starfskonurnar vorum orðnar nokkuð þreyttar. Magdalena Schram var kosningastjóri í Reykjavík og ég hélt utan um starfið á landsvísu.  Það hafði verið mikill gleðskapur kvöldið áður.  Fullir öskubakkar um allt hús, óhrein glös, matarleifar og gólfin voru grútskítug. Auk þess lá alls kyns kosningavarningur eins og hráviði um allt hús.

Ég mætti til vinnu daginn eftir partýið hálf framlág, Malla var ekki komin og aðkoman hræðileg.   Mér hraus hugur við að ...

Lesa meira
Page 1 of 3 123